8 dagar til jóla :D

og ég er búin að öllu nema senda jólakortin :D

kláraði jólagjafa kaupin í síðustu viku. er búin að skreyta hérna í mosó og svo skreytti mammsla herbergið mitt í sveitinni. ótrúlega nice að koma í hreint og skreytt herbergi!

var að vinna um helgina, ótrúlegt fjör. mætti hálf 2, það var frekar spes því þá eru allir ennþá vakandi og svona.  

þegar ég kom heim í morgun þá nennti ég ekki að fara sofa svo ég tók mig til og bakaði súkkulaðibita smákökur :p setti í þvottavélar og uppþvottavélar og þreif baðherbergið :D  óóóótrúlega dugleg.

sofnaði í smástund áðan og get ekki sofið meira. sef bara í kvöld :p

er í fríi næstu helgi :D stefnan er tekin á sveitina! ætla að fara með jólagjöfina til Dagbjartar og svo er Ásgeir bróðir að útskrifast sem stúdent á föstudaginn! guuuuð hvað ég er stollt af honum :p Andri litli á líka afmæli þá svo það er nóg að gera.

Skaust á skagann eftir vinnu í gær. fór til Andra og gerði með honum piparkökuhús. það var samt aðalega ég og hann sá um að sópa öllu af því aftur :/ :p hehe. hann er æði.

 

 eigum við að ræða vonda veðrið eitthvað? nei ég held ekki! nenni því ekki. nenni ekki að blogga meir:p er of upptekin við að láta mér leiðast

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband