það eru bókstaflega alveg að koma jól! kominn desember og ég rétt byrjuð að skreyta, ekki gott.
búin að vera vinna á fullu og baka smákökur í vinnunni, er eiginlega bara komin með ógeð af smákökum!
er ekki búin að kaupa allar jólagjafirnar! en er þó búin að kaupa gjöfina hans Einars ;D
var í afmæli hjá pabba í gær, ótrúlegt fjör! Erla mín, takk fyrir hjálpina! ;*
gærdagurinn var samt rugl. var að vinna frá hálf 2 um nóttina til 10 um morguninn, hafði engan tíma til að leggja mig. fór uppá skaga í Nínu og keypti mér bol fyrir kvöldið, fór uppí blokk og pakkaði inn gjöfinni hans pabba. fór svo að skreyta salinn og eitthvað. var svo í afmælinu til rúmlega 9 í gærkvöldið og fór svo í mosó að sofa til 1 og fór að vinna kl hálf 2. freeeeeeeeeeeeeekar þreytt! var búin að vinna um 10 í morgun, fór heim og sofnaði og var að vakna :p freeeeeeeeeeeeekar nice!
nenni varla að blogga meira.
heyrumst!
Athugasemdir
hvað er gaman við að baka smákökur og borða þær svo ekki ? pæling
... ekkert að frétta með lokaballið ? er það kannski búið
Hulda (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 22:26
verðiði ekki með jólaball ?
óli geir verður með eitt næstu helgi...
Hulda (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 21:30
Heyrðu No probleimo sko :)
farðu nú svo að blogga stelpa.. hehe :D
sé þig ;*
erla (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.