já heldur betur. mætti galvösk uppí skóla í morgun, talaði við Thelmu og Ásdísi í sambandi við skreytingar fyrir ballið og svo fóru þau öll af stað í ferðalagið og ég að gera skreytingarnar fyrir ballið. klippti út hitt og þetta og tékkaði ástandið á sjoppunni sem var bara fínt, þarf ekkert að kaupa inn fyrir ballið sem er gott því þá skemmist það ekki í sumar samt sko, það var einhver sem keypti stóran mars kassa um daginn og hann er óopinn en það skemmist í sumar. hefði ekki verið gáfulegra að kaupa bara lítinn kassa? ég held það. var aaaaalein að þessu öllu saman, leið eins og palli einn í heiminum
Hjálpaði svo Samma að taka til í tónmentarstofunni. Þvílíkt og annað eins drasl í kringum einn kennara.
fór svo heim og lagði mig aðeins of lengi held ég. mamma vakti mig eftir tveggja tíma svefn einhver sem býður sig fram að tala við mig í nótt? hmm
sem minnir mig á það, á að hringja í klippikonuna á eftir og panta tíma í lit og klippingu, hlakka ekkert smá til að losna við eitthvað af þessu hári! einhverjar hugmyndir af klippingu?
fer svo í neglur á fimmtudaginn
hef ekkert að gera... langar að blogga meir en ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að segja
Athugasemdir
Ekkert hár!!! Þá er ekkert vesen yfir að geta ekki sett í teygju :)
Ég sofnaði líka áðan.. en af því að ég er með hausverk þá held ég að ég geti sofnað á eftir... annars kemur það bara í ljós... :) og við höldum bara áfram að spjalla á msn :)
Þjóðarblómið, 22.5.2006 kl. 19:24
já mér líst vel á spjallið en ég er nú ekki á sama máli um að raka allt hárið af :p væri reyndar til í að sjá mig hárlausa en ekki séns að ég tékki það :p
Guðbjörg Þórunn, 22.5.2006 kl. 19:30
Hvaða hvaða... þetta er svo fljótt að vaxa aftur :)
Þjóðarblómið, 22.5.2006 kl. 22:24
skal nú bara segja þér það að í kringum Samma hefur alltaf verið mikið drasl.... spurðu bara systur þína
Sigrún (IP-tala skráð) 23.5.2006 kl. 13:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.