Færsluflokkur: Bloggar

lærdómur á laugardagskvöldi!

Jáhh eftir vinnu í gær rakst ég á hana Erlu mína sem var líka að klára að vinna. Þá skutlaði mamma hennar okkur útí sjoppu og svo fór ég uppá vist en Erla í sveitina góðu.

ég sé núna að það er ekkert spes að búa á skaganum, ég fer mjög sjaldan út að hitta einhverja svo þetta er næstum eins og að búa bara uppí sveit. Nema hér eru einhverjir "töffarar" sem keyra framhjá vistinni dag og nótt og gefa í. Það er svo yesterday strákar! Svo ég held að ég velji sveitina frekar en vistina :)

En þegar ég kom uppá vist fór ég í tölvuna og eftir að hafa skoðað allar heimsins síður leiddist mér þá tók ég upp bækur og fór að læra! jebb á laugardagskvöldi. Gerði 4bls í dagbók sem ég á að skila á Þriðjudaginn og svo kláraði ég verkefni í auglýsingasálfræði sem ég á að skila á Mánudaginn. Ætla svo að gera stærðfræði í dag og þá er ég góð. Væri ekki verra ef ég gerði eitthvað í dönsku en ég þarf ekki að vera búin með það fyrr en á fimmtudaginn svo lítið liggur á en aldrei að geyma til morguns það sem þú getur gert í dag :)  en ég ætla nú að horfa á nágranna og vinna og svona svo ég sé bara til :)

En ég fer semsagt ekki í skólann á Þriðjudaginn. Fer svo á Footlose næstu helgi og svo til tannlæknis að láta taka hinar tvær tennurnar á Mánudaginn eftir viku.

Það var dásamlegt að komast aðeins heim. Fór semsagt heim eftir vinnu á Föstudaginn og svaf heima og fór á skagann rétt fyrir vinnu í gær. Þótt dvölin heima hafi einkennst (what?) af miklum svefni þá er alltaf gott að komast heim. Þannig er það bara þegar maður er búin að vakna snemma í heila viku þá er gott að geta sofið í stóra rúminu sínu en ekki þessum eldspítustokkum sem eru hérna.

jæja, er málið að koma sér aftur uppí rúm og fá sér hænublund framm að Nágrönnum? ég held það :p

verið nú duglegri að kommenta! ég nenni engan veginn að blogga bara fyrir sjálfa mig sko! =)


kominn tími á blogg?

ákvað að blogga smá því ég hef ekkert að gera því ég er í eyðu :D

en í gær ákvað ég og Dagbjört að skella okkur í höfuðborgina því við vorum báðar í fríi og svona. svo ákvað Sigurbjörg að koma með svo þetta varð heljarinnar ferð :p  Tandri skutlaði okkur í strætó því hann fer alltaf 7 min eftir að við erum búnar í skólanum.

fórum í kringlunna og ég keypti mér eina dvd mynd! hvað er í gangi sko? ég var reyndar ekki í miklu verslunar stuði.  Hitti svo dásamlega manneskju :p  vá hvað það var nice :D   ég og Dagbjört fórum líka í svona myndatöku dót og fengum límmiða :D ógó töff skillru ;p haha djók

ætluðum svo með strætó heim eeeeen við misstum af honum :/ haha :p svo Tandri sótti okkur :)

fór uppá vist og sofnaði en hrökk svo upp um 6 leytið! brunabjallan fór í gang! krææææææst. náði svo ekki að sofna aftur, lá bara uppí rúmi. fór svo í skólann og fer svo í einn tíma á eftir og svo að vinna í kvöld og kemst svo vonandi aðeins heim á morgun :)

en ég held að ég láti þetta gott heita í bili. bloggin mín eru orðin ennþá ömurlegri eftir að ég fór á vistina, haha :p

 


.

veit ekkert hvað ég á að blogga um.. stærðfræðikennarinn er ekki svo ég er bara að drekka kók, borða muffu og hanga í tölvunni (Y) ætla samt að skoppa (haha;))  uppí skóla því það er leiðinlegt að hanga bara hérna.

óver and át.


einmannaleiki

að vera ein í herbergi á vist ætla ég mér aldrei að verða! Erla fór heim áðan og kemur ekki fyrr en annaðkvöld eða eitthvað og ég er strax orðin einmanna!  en ég er á leiðinni á rúntinn með minni yndislegu Dagbjörtu og Tandra :) þau eru einu vinir mínir sem nenna að koma ;D aheeeem!

 

var á dagvakt á hróa í dag sem þýðir að ég vann frá 10 í morgun til rúmlega 8 í kvöld. það má segja að þetta hafi alls ekki verið minn dagur. var ógeðslega þreytt og byrjaði á að þrífa djúpsteikingarpottinn og þá þarf maður að skrúfa svona krana á hann sem á að taka ca 10 sek en tók mig 10 min! hann ætlaði aldrei að skrúfast í ! ég varð ekkert smá pirruð.  svo í hádeginu var hlaðborð og ég var að gera pizzur á það og gerði óvart tvær pizzur í röð með ananas! hugsunarleysi eða já.  var svo að gera hundrað og billjón brauðstangir eftir hádegi og ein brauðstöngin vildi ekki fara af bökunar plötunni svo ég þurfti að ýta henni af og hvað haldiði að ég hafi gert? jú ég brenndi mig og það enginn smá bruni!  varð strax alveg eldrauð og svo hringurinn var á stærð við sko ég veit ekki hvað! setti alovera gel á það og þá minnkaði roðinn svo núna er ég bara rauð akkúrat þar sem ég brenndi mig og býst ég við að fá ör :/ svo núna er ég með tvö brunasár á sömu hendi! gebbað! nýjasta sárið er á myndinni uppi

svo ég var bara mjög fegin að komast uppá vist! fór reyndar fljótlega til Andra og Söndru en stoppaði bara stutt sökum þreytu. fór uppá vist og var komin í náttfötin þegar Dagbjört hringdi en ég er búin að klæða mig aftur svo ég bíð bara eftir að þau komi :D:D

fékk svo útborgað í gær hmm 8 dögum eftir mánaðarmót?!?! en ok ég fékk 121 þúsund, 408 krónur :D er ekkert smá ánægð en ég átti þetta svo sannarlega skilið því ég var búin að vinna í 121 tíma !!! 

ætla sofa eins lengi og ég mögulega get á morgun, liggja svo í leti yfir nágrönnum og læra svo kannski smá. ekkert sem liggur á samt. en þá er ég bara búin með það :)

jæja, mál til komið að taka inn verkjatöflur þar sem hnén mín eru farin að kvarta!

haldið áfram að kommenta! =)


þreytt!

get ekki annað sagt en að ég sé búin að vera þreytt alla þessa viku. vinna á þriðjudaginn, æfing í gær og svo aukavakt í kvöld og svo vinna um helgina, slatti af heimanámi svo já það er lítið sofið.  en það kemst vonandi í lag fljótlega :)

má eiginlega ekki vera að því að blogga því ég var að fatta að ég á eftir að gera 10 dæmi í stærðfræði fyrir morgundaginn og er að fara vinna eftir 21 min! en ég er bara til rúmlega 8 svo ég læri bara þá :)

hei já ég, erla og sigurbjörg fórum að versla um daginn og erla fékk geðveikan verk í magann og gat bara labbað hægt þá sagði sigurbjörg vá þú labbar hægar en mörgæs (eða eikkað þannig:p) þá sagði erla hei ég er með kviðslit! haha það var endalaust fyndið því síðast þegar ég vissi voru bara óléttar konur með kviðslit:p haha

en vinnan kallar. blogga meira í kvöld eða á morgun =)


Busaball og allt að gerast

jebbs hef ekkert bloggað um helgina því ég hafði margt annað að gera.

fór t.d í borgarnes á föstudaginn til Gísla :*  fórum svo með rútunni á ballið. sem var btw ömóóóóóóó! þessi DJ má alveg finna sér einhverja aðra vinnu sko, ekki alveg að gera sig. svo við fórum bara snemma heim :)

það var líka fínt því ég þurfti að vakna fyrir hádegi því ég var að fara til afa :D fór uppá vist og tók mig saman, skutluðum Gísla heim, fórum í hyrnuna til Ástu elsku og fórum svo á skagaströnd. það var æðibræði að sjá afa gamla. var ekkert voða happy að þurfa að kveðja hann tæpum sólahring seinna. óvíst hvenær við sjáumst næst. vona bara að það verði ekki langt í það. en á laugardagskvöldinu rúntuðum við um allar götur bæjarinns, sem var svosem allt í lagi. tók eftir einu athyglisverðu.  vorum að keyra frammhjá elliheimilinu og það er svona fattlaða stæði fyrir utan og hjólastólakallinn sem var málaður í stæðið var öfugur! eða ég hef amk aldrei séð hann svona áður :p  fór svo að sofa um miðnætti og vaknaði rétt fyrir hádegi! ahemm soldil mikil þreyta ...  fórum svo uppí kirkjugarð og svo smá sveitarúnt.

fórum svo á sauðarkrók að heimsækja vinafólk pabba. það var meget fínt. fórum svo heim og var ég komin uppá vist eitthvað um hálf 11.

skemmtileg helgi þar á ferð. vona að næsta helgi verði skemmtilegri. þannig er nefnilega mál með vexti að það eru smalamenskur uppí sveit og ætla ég mér að mæta á svæðið. þó ekki til að smala. heldur bara svona já mæta :p er reyndar að vinna en það er allt í kei :p

 

en já er semsagt búin í skólanum í dag. ætlaði að læra strax og ég væri búin en neeeeeei Máni kom í veg fyrir það :p  en ég er semsagt farin að læra og vona að þetta sé nógu gott blogg fyrir þig :)

3 komment á dag kemur skapinu í lag! =)


Hún er tannlaus greyið. takið eftir því, tönnunum hún týndi tannlækninum hjáááá.

var ekki að nenna vakna í morgun, eeeen eins og vanalega drattaðist ég á fætur. fór í lífsleikni og svo til tannsa. hann gerði við holuna og tók tvær tennur, það var soooldið mikið vont og er enn soldið íllt. svo verða hinar tvær teknar eftir 3 vikur svo ég verð bara með fjórar tennur í efri góm sem sjást! oj bara.  en vá þurfti að borga 12 þúsund og eitthvað fyrir tannlæknatímann áðan! fjúffifjúff

er komin með þvílíkt kvef og hálsbólgu. ekki alveg það skemmtilegasta.

svo bara busunin á morgun og ballið og allt að gerast :)  hlakka samt mest af öllu til að hitta Gísla minn :*

ohh nágrannar búnir. afhverju geta þeir ekki verið í svona klukkutíma? alltof stutt að hafa þá bara í 25 min.

 


Raunveruleikaþátturinn er klukkan 25 min yfir núll. hahahaha:p

jebb og já.

er í fríi í fyrsta tíma því það er engin stærðfræði svo ég svaf bara lengur :D  vaknaði nú samt klukkan hálf 8 og tók á móti henni Dagbjörtu minni en steinsofnaði svo klukkan 8 þegar hún fór :p

er núna búin að gera mig reddí fyrir skólann. er bara að borða morgunmat og á msn og rölti svo uppí skóla á eftir :p

fer svo að vinna í kvöld og svo á einhvern fund uppá hróa. fun fun.

svo bara skóli og tannlæknir á morgun! er orðin freeekar stressuð því ég þarf að fara í þrjár kennslustundir eftir það.  og sko það verða teknar tvær tennur! ég var alveg að drepast þegar það var tekin ein!  svo ekki láta ykkur bregða ef ég verð pirruð og fúl á morgun. þá er mér bara íllt í kjaftinum :)

jæja ætla hætta núna og skoppast uppí skóla.  haha skoppast.

 

4 komment takk! =)


3 dagar í ball =)

c_documents_and_settings_gu_bjorg_desktop_gisli.jpg

dagurinn í dag var bara fínn fyrir utan tveggja tíma hangs í morgun. fór í lífsleikni í fyrsta tíma og svo hangs framm að hádegismat. fun fun.

er svo bara búin að veraa chilla með Guðdísi og Dagbjörtu og eikkað :p

lærði svo í dönsku áðan, fékk mér að éta og er svo að fara á fund eftir akkúrat 20 min :p

 

en já busaballið er eftir 3 daga. ég verð samt að viðurkenna að mig hlakkar meira til að hitta Gísla heldur en að fara á ballið þar sem við erum ekki búin að hittast í 8 daga :/  svo já ég bíð eftir Gísla en ekki ballinu :p

fer svo líklegast til afa á laugardaginn og verð frammá sunnudag :D með pabba, örugglega Ásgeiri oooooooog Gísla :D  hlakka ekkert smá mikið til því ég er ekki búin að hitta afa síðan ég fermdist :/:/ 

jæja, farin á fund :p

blella

 

kommentið svoooo :D  þið ÖLL! sama þótt þið þekkið mig eður ei :p


c_documents_and_settings_gu_bjorg_desktop_gisli.jpg

jæja já

ég og Erla eða aðalega Erla tók til hendinni í dag. hún sópaði allt og skúraði og þurrkaði af hillunum sem voru btw ógeðslegar. hmm var ekki þrifið í sumar eða hvað?

fór svo að vinna og þurfti endilega að vinna langa vakt!  piiiiiff. vann langa vakt í gær og líka í dag!  en ég fæ pening svo ég kvarta ekki mikið.

 

en ég átti víst að blogga um að þegar er strippklúbbur fyrir karlmenn í Reykjavík þá eru femínistar alveg snar yfir því, en þegar kemur hópur af hommum til að strippa fyrir íslenskar konur (Chippendales þarna) þá er það bara einhver menningarviðburður á heimsmælikvarða...og þegar þarna Óli Geir herra Ísland hagar sér illa þá er hann sviptur titlinum, en þegar Unnur Birna heldur framhjá sínum gaur er hún ennþá æði

 svo núna er ég búin að því :p

en ég er orðin soldið mikið þreytt og þarf að vakna í fyrramálið í skólann. ohh var að muna eftir því núna að ég ætlaði í sturtu eftir vinnu!  ohh allt vistar þarna verðinum eða eitthvað að kenna :p neinei ég fer þá bara í sturtu í fyrramálið eða eitthvað. 

 

skal koma með skemmtilegra blogg á morgun :)

 

kommentið! =)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband