Færsluflokkur: Bloggar
heil og sæl öll sömul! ákvað að henda inn smá færslu í tilefni þess að ég er komin í langþrátt (eitthvað er nú bogið við þetta) helgarfrí! :D er byrjuð að vinna í Mosfellsbakaríi og það er killer! vakna kl 04:00 og vinn framm yfir hádegi og oft mikið lengur! eins og fyrsta daginn, þá var ég til hálf 4!! semsagt í 11 og hálfan tíma, ég hélt ég dræpist! svo er ég heldur ekkert með góð laun því ég er bara nemi :(
svo líf mitt einkennist af mikilli vinnu og svefni og engu öðru! líf mitt er bókstaflega svona:
vakna 04:00
kaffipása 09:00-09:15 ca
svefn frá ca 15:00-18:30
matur 19:00
svefn 20:00-04:00
ég hlít að grennast eins og eldur um sinu í þessari vinnu! labba alltaf í vinnuna og borða ekkert óholt! :D
starfsfólkið þarna er samt allt æðislegt! einn tjahh strákur og ekki strákur af skaganum og líka grundarfirði svo við könnumst við hvort annað og svo er þetta bara svo heimilislegt allt saman :)
vá ég verð að fara tala um eitthvað annað en vinnuna! :p
ég er búin að fá útúr öllu nema félagsfræði í skólanum og því náði ég öllu :D ekkert smá glöð þar sem ég var ansi hrædd um að falla í stærðfræði! úffi púff :p held ég sé á ansi gráu svæði með félagsfræðina en það kemur bara í ljós!
sit annars bara hérna inni á Netkaffi í mosó, rosa næs.
spurning hvað á að gera um helgina? er nú í bænum svo ég gæti bara kíkt á djammið ;D hahaha já eða ekki :p haha.
held ég fari að slíta þessu og koma mér heim að sofa! og borða! jii hvað ég varð allt í einu svöng :p
ykkur er alveg óhætt að slá á þráðinn til mín, þótt ég sé flutt af skaganum/sveitinni, þá er ég ekki flutt til hvergilands :)
Bloggar | 18.5.2007 | 15:33 (breytt kl. 15:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
og ég hef aldrei á ævinni verið með jafn boring próftöflu! en allvega....
komin með örugga vinnu í sumar hvort sem það verður á Höfða eða Mosfellsbakaríi. Þeir í bakaríinu eru að ræða málin og tékka hvort ég geti bara ekki byrjað strax því þá er ég búin fyrr með námið :D ohh þetta verður yndislegt!
svo ég bíð eftir hringingu ;D
held ég bloggi ekki mikið í sumar, því eins og Guðdís sagði: Sumarið er tíminn! ég ætla að nota sumarið í að gera eitthvað skemmtilegt en ekki bara hanga inni og gera ekki neitt! er komin með nóg af því! verð líka vonandi mikið að passa svo ég verði nú rík eftir sumarið :D
læt þetta duga í bili og við heyrumst í haust eða sumar eða kannski bara um. . . jólin! :D ekki nema rúmir 7 mánuðir í þau ;D
Bloggar | 4.5.2007 | 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
ætla að henda nokkrum línum hérna inn áður en ég fer í skólan!
dagarnir hlaupa frá mér eins og ég veit ekki hvað! ég þyrfti helst svona 15 dagar eftir að skólinn er búinn og þar til prófin byrja til að lesa! ég ræð engan veginn við þetta!
er að fara keppa í miðjum prófum og mig langar mest bara til að hætta við það! en svona er þetta!
minni svefn til 10 maí ætti að redda þessu, nema stærðfræðinni. ég er að skíta uppá bak í henni! Máni afhverju geturu ekki verið hérna alla daga?! :p
litun og klipping á föstudaginn! i'm going for blond held ég! jebb ótrúlegt en satt þá ætla ég að prufa það held ég.
vistarkeilan var í gær! þvílíkt fjör! var neðst í mínu liði en ekki neðst af öllum samt, Siggi óskar fékk þann heiður. daginn þar á undan fórum við Dörrt á Because you said so eða eitthvað þannig. hún var mjög góð.
en ég þarf að drífa mig í skólann! fátt skemmtilegra en Enska með Ævari ;D ég held að ég sé lang öruggust með hana og uppeldisfræðina. held að það sé líka útaf því hversu kennararnir eru skemmtilegir!
say no more!
blelli
Bloggar | 25.4.2007 | 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
var að koma af Akureyri. fór á söngkeppnina í gær og þrátt fyrir að FVA vann ekkert þá var þetta gott hjá þeim ;* en ég verð þó að vera hreinskilin og held og vona að það fari ekki fyrir brjóstið á stelpunum en mér fannst þær standa sig betur í forkeppninni. núna voru auðvitað miklu fleiri bæði áhorfendur og keppendur. en þetta var samt sem áður mjög skemmtilegt og frábært hjá ykkur ;*
ballið var mjög skemmtilegt en fór samt kl 3 sökum þreytu. vaknaði svo ýkt úldin í morgun til að fara með rútunni.
núna styttist óðfluga í keppnina og æfingarnar eru því mun fleiri. er að fara á æfingu núna eftir smá. ég þarf samt að finna búning! ætli það endi ekki með að ég verði í einhverjum gömlum tuskum! hugsa það. er annars mjög spennt fyrir þessu :)
er aðeins að ljósast núna, fór tvisvar í síðustu viku og ætli það verði ekki eitthvað svipað í þessari viku.. aðeins að ná sér í smá lit svo ég verði nú ekki eins og albinói :p
gæti sagt svo miklu meira en ætla að koma mér á æfingu.
Bloggar | 15.4.2007 | 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Páskafríið var æði! svaf mikið og eyddi tíma með þeim sem mér þykir vænt um!
byrjaði á að vinna í fermingu og fékk slatta af pening fyrir það. fór í barna afmæli hjá Laufeyju sætu og passaði svo þau systkinin og gott betur í þrjá daga. þó svo að ég elski þau rosa mikið þá tekur á að passa þau frá morgni og frammá dag! samt sem áður yndisleg börn ;*
skellti mér svo á æfingu á miðvikudagskvöldinu og skráði mig í keppnina. Hugmyndir að búning takk fyrir? :D
slappaði af í tvo daga og fór svo til Akureyrar til hennar Önnu stjúpmömmu. hún er æði ;*
í eyrum mér hljómar x-factor lagið Hvern einasta dag í flutningi Jógvan! *sleeeeeeeeef* greyið drengurinn að vera svona sætur ;D þetta lag kemur til með að hljóma í eyrum mínum þar til ég sofna þeing jú verí næs!
en allavega
ég fór með rútu til Blönduóss og vá þvílíkt leiðinleg ferð! steikjandi hiti, barn ælandi, gamall pirrandi maður og þreytandi gaur! þvílík skemmtun!! pabbi sótti mig á Blönduós og við fórum til Skagastrandar, kíktum á afa gæja. hann er svo yndislegur ;* brunuðum svo til Akureyrar og alla leiðina hneykslaði ég mig á skiltum sem stóðu hér og þar en engir sveitabæjir! það hneykslaði mig mjög mikið. en þá útskýrði pabbi fyrir fáfróðu stelpunni sinni að fólk getur beðið um að gera svona ef það vill vita um uppruna sinn og svona. mjög spennó ferð eða þannig
dagarnir fyrir norðan voru æði, náði að sofa mikið og rúntaði smá og skoðaði hitt og þetta. fór t.d í jólahúsið og sá húsið sem Jóhannes í Bónus er að byggja og vá þvílíkt rugl! hann ætlar ekki einu sinni að búa þarna. mér finnst þetta hús samt ekkert flott en það vantar ekki stærðina! svo er búið að malbika afleggjaran og setja ljósastaura og allt. þvílíkt rugl finnst mér!
fer svo aftur um helgina til að fylgjast með Ástu Marý og Álfheiði elskum ;* vonandi standið þið ykkur eins frábærlega og alltaf ;D
úff ég held ég fari að hætta.
eða nei
ég er komin með sumarvinnu! fékk vinnu á Dvalarheimilinu Höfða :)
núna er ég hætt, á eftir að taka allt uppúr töskunum sem ég setti í þær fyrir nokkrum klukkutímum!
ef einhver vill gera dönsku verkefni fyrir mig þá gjörðu svo vel! og líka í íslensku :p
Bloggar | 10.4.2007 | 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
jebb þetta er ein af þeim fjölmörgu setningum sem ég kann utan af eftir þessa þrjá daga sem ég hef verið hjá henni Ellu minni. Er búin að horfa á Ávaxtakörfuna svona hmmm 5 sinnum, hún er líka að rúlla núna en ég nenni ekki að standa upp og slökkva. er alltof þreytt, er búin að taka til í tveimur barnaherbergjum og það er sko meira en að segja það þeing jú verí næs! get bara ekki setið aðgerðarlaus hérna, en mátti til með að blogga aðeins þar sem ég er netisslaus heima! það er að gera mig brjálaða!!
en allavega
var að vinna í fermingu á sunnudaginn, fékk slatta af pening fyrir það :D kom svo beint til Ellu og er búin að vera passa, fer svo á æfingu í kvöld. svo á morgun koma Dörrt og Gudda og ætlum við að hafa það gott :D kannski einum of gott ;) heheh. svo á laugardaginn tek ég rútu til Blönduóss og fer þaðan með pabba og Önnu til Skagastrandar til afa og svo til Akureyrar heim til Önnu. fer svo heim með pabba á mánudaginn og ætla að reyna að nota þessa daga fyrir norðan til að læra þar sem ég hef ekki verið beint dugleg í því í páskafríinu :/ þarf bara að lesa heila bók, gera dönskuverkefni og íslenskuverkefni. tekur svosem enga stund ef ég fer í það ;D
ojæja, ætla að leggja mig smá á meðan litli Magnús sefur, það tekur á að vakna hálf sjö og passa í 8 tíma á dag! en þessi börn og fjölskylda er svo sannarlega þess virði! elska ykkur í klessu ;* elska þau svo mikið að ég ætla að lána þeim bílinn minn frá og með deginum í dag og til 27 apríl! mér finnst ég ýkt góð! svo núna verður röltið tekið upp aftur ;D
verið nú duglegri að kommenta!
Bloggar | 4.4.2007 | 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
jebbs henni tókst að fylla sautján árin þessari elsku! :D
ég ætla að gefa henni rosa skæs pakka ;D hlakka til að sjá hana þegar hún opnar hann! :D
annars er að koma páskafrí! :D :D :D :D :D :D get ekki beðið eftir að þessi dagur er búinn! fer reyndar bara í þrjá tíma :p fer svo með bílinn í smur, sæki Andra Pál, næ í ný spil fyrir ömmu og fer að kíkja hvar fermingarveislan er sem ég er að fara vinna í á sunnudaginn.
ENN!
á miðvikudaginn skellti ég mér á tónleika og það er ekki frásögu færandi nema það að þeir voru með honum Sir Cliff Richard! :p ég hef aldrei verið neinn aðdáandi en ég skemmti mér konunglega. fór bara með mömmu því henni langaði svo, svo ég sagði henni að kaupa miða og að ég færi bara með henni :D
fór líka í kringluna og keypti mér tvo boli. annar er grár og svartur og opinn í bakið og hinn er ljósblár síður hlírabolur, bara töff. Svo hitti ég líka Ástu mömmu hans Gísla ;) hún er súper.
yfir páskana ætla ég að hafa það notalegt uppí sveit og líka á Akureyri hjá kærustunni hans pabba. fer svo aftur á Akureyri 14 apríl þegar Ásta og Álfheiður elskur taka þátt í söngvakeppninni ;* ákvað að fara bara með rútu því ég veit ekkert hvernig veður verður eða neitt.
tíminn líður skólinn bíður . . . . ekki.
svo ég þarf að fara bursta tennurnar og koma mér yfir götuna.
kommentið elskur ;*
Bloggar | 30.3.2007 | 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
jahá að skrifa titilinn tók mig ca korter því ég er að horfa á KF nörd :p en jæja það eru auglýsingar svo ég ætla að skrifa eitthvað.
eins og titillinn segir þá er ég komin með bílpróf :D reyndar 20 dögum seinna en ég varð 17 ára en betra er seint en aldrei ;)
svo auðvitað hef ég rúntað út í eitt síðan ég fékk prófið :p hevý fjör (Y)
annars er skólinn bara nr eitt tvö og þrjú þessa dagana þar sem önnin fer að klárast :D get ekki beðið. svo er auðvitað liðveislan og línudansinn :D fer að koma að keppni og alles, einhverjar hugmyndir að búning?
æ úff ég nenni ekki að blogga. er svo sokkin í sjónvarpið :p blogga þegar mér leiðist ;D
tjá ;*
Bloggar | 22.3.2007 | 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
How sweet! fór bara í tvo tíma í dag! :D bara nice, var búin á hádegi :D
annars er vikan bara búin að vera góð. Náði loksins bílprófinu :D man ekki hvort ég var búin að blogga um það? svo það er bara verklega á þriðjudaginn :D úllala ;D
helgin er eiginlega óplönuð. fer allavega uppí akraneshöll á morgun að horfa á Sigþór keppa í fótbolta :p æðivei :)
veit ekki afhverju ég er að blogga. hef reyndar ekkert betra að gera :p
læt þetta samt bara duga :p hehe
Bloggar | 16.3.2007 | 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
afhverju ætti ég að blogga ef ég fæ engin komment? =)
en allavega.
vikan var geðveik! væri til í að vera í svona útvarpsáfanga eða eitthvað, þvílíkt fjör þó umræðan hafi oft á tíðum farið aaaaðeins yfir strikið ;p haha það var bara hipp og kúl ;p
Opnu dagarnir enduðu svo með heljarinnar árshátíð á fimmtudaginn. það var ekkert smá gaman! byrjaði daginn á að vakna um 10 því strákarnir áttu að sjá um útvarpið en ég skellti mér nú samt til þeirra svo þeir færu sér nú ekki að voða ;D byrjaði svo að hafa mig til um 3 og fór út í skóla kl 6 og dagskráin byrjaði hálf 7. uppistandarinn var æði! sem og leynigesturinn Bubbi Morteins! ég hef nú aldrei verið neitt bubba fan en þetta var æði! fór svo uppá vist og chillaði þar til ballið byrjaði og dansaði af mér fæturnar! Paparnir klikka aldrei! :D
svo í gær fór ég í langþráða ferð í Laugar spa! það var himneskt! hef ekki náð að slaka svona á síðan ég veit ekki hvenær! fór svo uppá vist og horfði á Jógvan elsku komast áfram í X-factor! ég get svo svarið það að ég ætla að giftast honum :p eða nei þá væri ég gift tveimur :S æ shit happens :p get ekki gert uppá milli þeirra svo ég verð bara að vera gift tveimur :p
vaknaði svo seint og síðar meir í dag sem var dásamlegt, fór út í búð að versla í matinn og ætla að slappa af og gera ekki rass í bala í dag :D mmmm hljómar vel :D
held að þetta sé komið gott bara :p
nú heimta ég komment! :D
Bloggar | 10.3.2007 | 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)