Hugurinn fer hærraaaaaaaaa! elska þetta lag! get hlustað á það daginn inn og daginn út.
er að drepast í hnénu! er samt ekki búin að taka verkjatöflu svo ég get sjálfri mér um kennt en ég vil bara ekki trúa því að hnéð mitt þoli ekki að dansa í tvo tíma á viku.
er semsagt ný komin af æfingu. það var mjög gaman bara, var svo beðin um að sýna fyrir eldriborgara á sunnudaginn og auðvitað geri ég það
svo eru Litlu jól í gangi hérna á vistinni. allir frammi að borða piparkökur og drekka kakó. kíkti aðeins framm áðan en forðaði mér fljótt inn í herbergi þar sem aaaaðeins of margar myndavélar voru þarna.
á morgun get ég svo sofið aðeins út. þarf ekki að mæta í neina tíma fyrir hádegi. svo er stefnan tekin á höfuðborgina eftir skóla annaðhvort með mömmu eða pabba. þarf að kaupa mér nýjan síma og ætla líka að kíkja á hana Þóru mína og sætu strákana í Húsó
nenni ekki að blogga meir. ætla fá mér verkjatöflu og sofna svo fljótt.
Góða nótt allir
Viðbót!! Er búin að fá 413 komment keep on going ! og Þóra er búin að kommenta 79 sinnum held ég :p
Flokkur: Bloggar | 29.11.2006 | 23:01 (breytt 30.11.2006 kl. 15:47) | Facebook
Athugasemdir
kvitta fyrir komu
Ólafur fannberg, 30.11.2006 kl. 08:10
hehe :) Hvað skyldi ég eiga mörg af þessum kommentum? Nú er ég búin að eyða um hálftíma í vitleysu... úps! Hlakka til að sjá þig kannski í dag :)
Þjóðarblómið, 30.11.2006 kl. 11:54
hér er ég komin aftur úr kafi,þú átt nokkur komment hehe,see u....
Ólafur fannberg, 30.11.2006 kl. 16:04
Magnað!! Ýkt er ég dugleg :) Ætla að blogga en læsa færslunni ... þú biður bara um lykilorðið þegar þú kemur á netið :)
Þjóðarblómið, 1.12.2006 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.