já ætli maður reyni ekki að blogga eitthvað.
finnst þetta nýja dót hérna snilld. hægt að gera skrautleg komment, lagalista og bloggvini og ég veit ekki hvað. ég er nú bara með 2 bloggvini samt :p dugar mér alveg :)
annars er dagurinn bara búinn að vera fínn. vaknaði reyndar drulluþreytt og með hálsríg og harðsperrur í rifbeinunum! samt er ég ekkert búin að gera, hmm . . . fékk verkefni í félagsfræði sem ber nafnið starfsundirbúningur eitthvað. og ætla ég auðvitað að skrifa um kokkinn
svo fór ég í ljós með Dagbjörtu minni. úff hvað það var nice að liggja í ljósabekk eftir að hafa verið úti í þessum kulda! svo fórum við í auka lífsleiknitíma sem snérist um kynfræðslu. satt best að segja var þetta bara skemmtilegt :) frekar fyndið samt :p svo fengu allir smokka nema ég. mér var sama samt.
svo skelltum við okkur á galito og fengum okkur dýrindis möggu með chili. namminamm :p svo fórum við aðeins uppá vist og svo í smá göngutúr útí sjoppu og til baka :p
rosa gott að vera soldið sona saman :) þykir obboslega vænt um þig :* :)
kommentið nú lömbin mín! haha :p
Athugasemdir
comment;**
Thelma (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 15:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.