Hvað er málið?

Er að horfa á fréttirnar á ruv aldrei þessu vant. og þar var maður sem var 75% öryrki. það var verið að lækka peninginn sem hann fær í bætur á mánuði og þær voru lækkaðar niður í 90 þúsund! þá á hann eftir að borga 40 þúsund í húsaleigu, símreikning bæði fyrir heimasíma og gsm því hann er með sykursýki og eitthvað svo hann verður líka að vera með gsm síma uppá öryggið, svo á hann bíl svo hann á 10 þúsund eftir í mat á mánuði! hvað er málið spyr ég nú bara? greyið maðurinn getur ekki unnið og hvernig á hann að lifa á 10 þúsund á mánuði???

mér finnst alveg ótrúlegt hvernig farið er með fólk sem minna mega sín.  það er eins og þau hafi ekki tilfinningar og þurfi ekki að lifa eins og annað fólk.

þeir sem sjá um þessi mál fyrir öryrkja meiga skammast sín og taka sig á!

ég á ættingja sem hefur mikið þurft að vera frá vinnu útaf spítalavistum og hún fær lítið sem ekkert í bætur eða þannig! því það er ekki nógu mikið að stráknum hennar! þarf hann að vera heila og fótalaus svo hún fái eitthvað af viti eða?

þoli ekki svona.

það á að ganga jafnt yfir alla! takk fyrir!

annars er allt gott bara. Erla að vinna svo ég veit ekki hvað ég geri í kvöld???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er þér svo sammála. Ég á einhverfan son og við búum í Svíþjóð... Guð sé lof!

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.10.2006 kl. 19:51

2 identicon

Já ég fattaði ekki rassgat sem þú varst að segj í þessu bloggi þar sem að j´ég nennti ekki að skilj ;D hehe

erla (IP-tala skráð) 21.10.2006 kl. 23:37

3 Smámynd: Guðbjörg Þórunn

Takk fyrir kommentið Gunnar :) alltaf gaman að fá komment frá ókunnugum.

Eru þessi mál semsagt öðruvísi þarna úti?

Erla: þú fylgist heldur ekki með fréttum :p haha

Guðbjörg Þórunn, 22.10.2006 kl. 03:24

4 identicon

hei jú !!!
íþróttafréttum :D hahaha :D

Erla (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 12:06

5 Smámynd: Guðbjörg Þórunn

úúúúú :p

Guðbjörg Þórunn, 22.10.2006 kl. 13:09

6 Smámynd: Þjóðarblómið

En greyið litla namsfólkið sem vinnur af sér rassgatið og meira til og fær svo utborgað þannig að rétt dugi fyrir leigunni? Svoleiðis fólki á líka að vorkenna.

Þjóðarblómið, 22.10.2006 kl. 19:06

7 identicon

Sammála, aumingja námsfólkið!!! Námslánin uppí svona 300 þúsund á mánuði takk :D

En ætli kallinn í fréttunum (sem ég sá líka) verði ekki bara að éta hafragraut :)

Máni (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 20:02

8 Smámynd: Guðbjörg Þórunn

hafragrautur er ógeð :p

jú auðvitað líka greyið námsfólkið (þar á meðal ég :p) það á auðvitað erfitt líka en það getur þó gert eitthvað í því, annað en kallinn í sjónvarpinu. námsfólk getur annðhvort hætt í skóla eða fundið betri vinnu en öryrkjar geta ekki unnið svo ég vorkenni frekar öryrkjum heldur en námsfólki :)

Guðbjörg Þórunn, 22.10.2006 kl. 20:16

9 identicon

Frekar hækka námslánin og öryrkjarnir geta þá bara farið í skóla ef þá vantar pening :D

Máni (IP-tala skráð) 23.10.2006 kl. 08:22

10 Smámynd: Guðbjörg Þórunn

Máni reyndu ekki að vera meira grey en öryrkjarnir ;p

Guðbjörg Þórunn, 23.10.2006 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband