jebbs henni tókst að fylla sautján árin þessari elsku! :D
ég ætla að gefa henni rosa skæs pakka ;D hlakka til að sjá hana þegar hún opnar hann! :D
annars er að koma páskafrí! :D :D :D :D :D :D get ekki beðið eftir að þessi dagur er búinn! fer reyndar bara í þrjá tíma :p fer svo með bílinn í smur, sæki Andra Pál, næ í ný spil fyrir ömmu og fer að kíkja hvar fermingarveislan er sem ég er að fara vinna í á sunnudaginn.
ENN!
á miðvikudaginn skellti ég mér á tónleika og það er ekki frásögu færandi nema það að þeir voru með honum Sir Cliff Richard! :p ég hef aldrei verið neinn aðdáandi en ég skemmti mér konunglega. fór bara með mömmu því henni langaði svo, svo ég sagði henni að kaupa miða og að ég færi bara með henni :D
fór líka í kringluna og keypti mér tvo boli. annar er grár og svartur og opinn í bakið og hinn er ljósblár síður hlírabolur, bara töff. Svo hitti ég líka Ástu mömmu hans Gísla ;) hún er súper.
yfir páskana ætla ég að hafa það notalegt uppí sveit og líka á Akureyri hjá kærustunni hans pabba. fer svo aftur á Akureyri 14 apríl þegar Ásta og Álfheiður elskur taka þátt í söngvakeppninni ;* ákvað að fara bara með rútu því ég veit ekkert hvernig veður verður eða neitt.
tíminn líður skólinn bíður . . . . ekki.
svo ég þarf að fara bursta tennurnar og koma mér yfir götuna.
kommentið elskur ;*
Athugasemdir
Kúkalébbsss ;]
erla (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.