6 dagur runninn upp í veikindum mínum. er að verða nett brjáluð á þessu. Byrjaði á að fá kvef og einhvern viðbjóð á þriðjudaginn og það er ekki að lagast!
ég held að ég geti ekki tekið inn fleiri meðöl!
ætlaði svo í bæinn yfir helgina að passa fyrir Ellu en þurfti að hætta við því mér er ekkert að batna :(
er bara núna að láta mér leiðast uppá vist, horfði á Eurovision áðan og er EKKI sátt!!!!! Friðrik Ómar átti að vinna! en neeeeei einhver síðhærður gamall kall vann! púffipúff!
vaknaði klukkan hálf 3 í dag svo ég sé ekki framm á að sofna strax, fór líka ekki að sofa fyrr en að verða 4 og sofnaði svo áðan :p fátt betra en að sofa þegar maður er svona lasin :)
Takk aftur Máni fyrir stærðfræði hjálpina ;* held að þú ættir bara að taka við af Garðari ;D
farin að fá mér hóstamixtúru, strepsils, nefsprei, lýsisperlur, pizzu og kók :p
róum okkur í að vera sætur sko :p
Vonum bara að Eiríkur fótbrotni og þá fer Friðrik út :p jeiii :D
Athugasemdir
Ó svei Ó svei það er ei gott að vera lösin..
Ég er sem betur fer ekkert búin að fá veikindareinkenni :) 7.9.13 :D
Eeen sé þig á morgun. blellið :*
Örlý (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 17:01
Tótally sammála! Friðrik Ómar átti að vinna þetta Eiríkur svo sem næstbesti kosturinn en langaði svo að senda Friðrik út :( en jæja, svona er þetta bara.
Þorgerður (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.