er ég að standa mig í blogginu? JÁ! :D
Ég og Friðrik Ómar erum gift! hann veit bara ekki af því :p hehe.
var að horfa á forkeppni Eurovision og vá lagið sem Friðrik Ómar söng var bara snilld. og líka lagið sem Jónsi söng. báðir alveg gullfallegir ;D lagið sem Hera söng var líka geðveikt en ekki Eurovision lag fannst mér. frekar bara svona rólegt kúrilag :p
Ég kaus bæði Friðrik Ómar og Jónsa, svo geta þeir bara ekki farið saman í Eurovision? :p hehe. veit ekki hvort lagið myndi spjara sig betur?
en að allt öðru. Ég fór ekki á ballið í gær. Afhverju spyr einhver? ég hafði bara engan áhuga á því. Róbert að dj-ast og ég bara í engu ball stuði svo ég flúði bara í sveitina og hafði það næs. horfði á X-factor og ég er ekki frá því að Jogvan sé soldið mikið sætur :p hvað er að koma yfir mig? finnst svo margir sætir :p en það er svosem ekkert slæmt. horfði svo á einhverja American Idol mynd sem endaði þannig að stelpan byrjaði með sæta stráknum :D elska þannig myndir ;D ákvað svo að sofa vel og lengi og slökkti því á símanum OG tölvunni! jebb undur og stórmerki gerast. og svaf líka alveg í 11 tíma eða eitthvað :D
Svo er ég búin með Ökuskóla 2 svo það eru bara bílprófin eftir og nokkrir ökutímar og þá verð ég akandi um á rauðum Nizzan Sunny ;D eeeen Gísli verður að bíta í sitt súra epli því hann fær bílprófið á eftir mér :D:D:D:D:D hahahahahahahahaha. Gott á þig ;)
Núna er ég orðin formlegur Sjálfboðaliði hjá RauðaKrossinum! ég er ekkert smá stolt af mér! ég og stelpa sem heitir Hildur verðum saman með eina stelpu og hittum hana í 2 tíma í viku í 10 vikur og fáum eina einingu fyrir. Svo ef þetta gengur vel þá bíður mín verkefni sem Liðveisla, er ekki 100% viss um hvað það er svo ég ætla að sleppa að tjá mig mikið um það :) það virkar svipað eins og ég er að fara út í núna en eitthvað meira og stærra og ég tek því opnum örmum ef þetta gengur vel sem ég vona svo sannarlega :)
Ég hef verið að velta næsta vetri ansi mikið fyrir mér. Eitt er alveg ákveðið og það er að ég verð ekki í FVA. ég ætla í MK ef ég kemst inn. en ég er farin að hallast soldið að bakaranum því hann er ekki eins bindandi eins og kokkurinn er.
Svo langar mig að fara á förðunarnámskeið sem tekur ca fjóra mánuði. get þá unnið við það svona á daginn og seinniparta þegar ég er búin í bakaríinu :) held að það sé fínt að hafa eitthvað með og fá aukapening :p mig langar eitthvað svo margt :p
annars held ég að þetta sé bara komið gott.
Blessbæ!
Athugasemdir
neii Gubba ekki fara í borg óttans(RVK)
vertu bara hérna, ég skal kenna þér að elda;Dehe
Guðdís (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 21:18
þetta eru nú ekki nema 3 og hálft til 4 ár :) kem svo bara og elda fyrir þig þegar ég þarf að æfa mig ;D
Guðbjörg Þórunn, 28.1.2007 kl. 22:04
Hver er Jogvan ? Ekki er það færeyingurinn ?
Nei Guðbjörg mín þá er allt vit komið í vitleysu ! =D
Örlý (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 23:49
flott blogg;* gaman að fylgjast með þér!;* bæj;*;*
Thelma;* (IP-tala skráð) 29.1.2007 kl. 19:50
Liðveisla er svipað ogþú virðist vera í. Það er miðað við að liðveisluveitandi tekur þjónustuþegann sinn og eyðir með honum um 16 tímum á mánuði, og fær borgað fyrir það.
Þjóðarblómið, 31.1.2007 kl. 12:57
ok takk :)
Guðbjörg Þórunn, 31.1.2007 kl. 13:02
vá hvað mikið er að gerast hjá þér núna..:) ,,
bara erfitt að fylgjast með þér :-| :) .. en,, 28 dagarr:D
sé þiig;*
sirrý (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.