næsta æfing er eftir áramót! :O

Síðasta línudansæfingin á þessu ári var í kvöld. skemmtileg æfing bara, gat dansað næstum því allan tíman :D en sökum fastra liða eins og vanalega þurfti ég að horfa á í restina :/  er að verða brjáluð á þessu hné-i !!

ég og mamms fórum í bæinn í morgun. vöknuðum um 8 leytið og gátum því haft allan daginn í að versla, sem við gerðum. ég keypti mér samt bara nærföt, btw alveg eins og ég á! arrg! en það er svona að vera með ofnæmi. keyptum svo böns af jólagjöfum og svo fór ég á skagann og mamma fór heim en sótti mig svo eftir æfingu.

en á morgun þarf ég að læra fyrir stærðfræði prófið. eða læra og ekki læra, aðalega bara rifja upp. kann þetta allt nema kannski eitt. svo eru sumir eitthvað að efast um það að ég kunni stærðfræði! get nú sagt þér það bjáni minn að ég kann hana alveg :D er allavega að fá 8-8,5 í skyndiprófum svo ég kann hana víst, það ert bara þú sem kannt hana ekki Whistling  eða þú veist ehh já :p

fer svo í afmæli hjá Bjössa stjúpbróður mínum á laugardaginn, hlakka til því ég hitti hann svooo sjaldan :/

eins og einhverjir tóku eftir þá læsti ég síðunni í smástund. aðal pointið var að tékka hverjir og hversu margir myndu spyrja um lykilorðið en svo ákvað ég að hafa það ekkert lengur því mér fannst eitthvað svo spes að hafa það :p

nú heimta ég komment!


lok lok og læs og allt í stáli

komin heim í smá frí. fer ekki í næsta próf fyrr en á föstudaginn og það er stærðfræði :D hlakka meget til.

íslenskuprófið gekk betur en ég bjóst við, sem er auðvitað ekkert nema gott.

nenni ekki að blogga. bleee


Nýr sími, próf og jóliiiiiin

venjulegur skóli búinn! újééé. bara 4 próf eftir. eitt á mánudaginn. eitt á föstudaginn, eitt á þriðjudaginn og eitt á fimmtudaginn.  held að þetta sé svona.

er núna bara heima í sveitinni. fór heim í gær því ég nennti alls ekki að vera á vistinni. málaði piparkökur í gær með Andra litla frænda. spurning hvort ég eða hann hafi haft meira gaman af því Whistling  svo er orðið ansi jólalegt hérna. búið að hengja upp öll jólaljósin og skreyta allt nema mitt herbergi því ég hef ekki verið heima til að gera það og er núna að fara dansa fyrir eldri borgara svo ég geri það bara eftir prófin. þá fæ ég allavega ekki ógeð af skrautinu mínu Wink

svo var pabbi svo æðislegur að fara með mig í bæinn á fimmtudaginn að versla nýjan síma. keypti ógó flottan Samsung samloku síma. hann er meira að segja gulllitaður Cool  fórum svo til ömmu og spiluðum ólsen ólsen fyrir lífstíð! hehe.

er svo líklega að fara hjálpa til með opið hús á þriðjudaginn og fer svo vonandi í bæinn með mömmu á miðvikudaginn. og svo er síðasta línudansæfingin um kveldið á þessu ári. ætlum að fara fyrr í frí og byrja fyrr því keppnirnar eru svo snemma á næsta ári.

svo var ball á föstudaginn. byrjaði á að fara í partý til gústa eitthvað um 6. svo var ég svo svöng svo ég, óli og Guðmann pönntuðum pizzu á Galito og hún var 80 min að koma!  hélt ég myndi deyja úr hungri.  svo eitthvað um 10 lét ég sækja mig og Erlu og við fórum aðeins uppá vist og svo á ballið sem var bara mjög fínt. ég var edrú Tounge og gat sko alveg skemmt mér! fór svo bara uppá vist eftir ballið og fór að sofa.   án efa eitt af tveimur skemmtilegustu böllum annarinnar. á þessum tveimur böllum var ég edrú!

Get ekki beðið eftir jólunum.  ég veit um tvær jólagjafir sem ég fæ! eða eiginlega þrjár. fæ sæng frá pabba, Önnu og ömmu og svo úr, armband og hringi frá Ásgeiri, Söndru og Andra. og er svo búin að panta dekur frá mömmu og magga, sagði henni að panta í Laugar spa því Valdís sagði mér að gera það Grin eins gott að það sé almenninlegt Valdís Wink hehe.

Svo ætla ég aðeins að slaka á jólagjöfunum í ár. það sem ég þarf að kaupa er handa Dagbjörtu, mömmu og pabba en Ásgeir og Sandra borga í því. ég held og vona að mamma verði ýkt ánægð með gjöfina sína því það verður þvílíkt puð að láta hana ekki fatta neitt! henni langar nefnilega í soldið og ég er búin að panta það en þarf svo að láta senda og það verður sent hingað líklega!  er búin að kaupa gjöf handa ömmu sem verður frá Ásgeiri, pabba og Önnu líka. svo sendi ég bara nokkur jólakort og þá er það búið.

held ég láti þetta duga. þarf að fá mér smá að éta áður en ég fer.


7 kennslustundir eftir :D

Hugurinn fer hærraaaaaaaaa! elska þetta lag! get hlustað á það daginn inn og daginn út.

er að drepast í hnénu! Pinch er samt ekki búin að taka verkjatöflu svo ég get sjálfri mér um kennt en ég vil bara ekki trúa því að hnéð mitt þoli ekki að dansa í tvo tíma á viku.

er semsagt ný komin af æfingu. það var mjög gaman bara, var svo beðin um að sýna fyrir eldriborgara á sunnudaginn og auðvitað geri ég það Wink 

svo eru Litlu jól í gangi hérna á vistinni. allir frammi að borða piparkökur og drekka kakó. kíkti aðeins framm áðan en forðaði mér fljótt inn í herbergi þar sem aaaaðeins of margar myndavélar voru þarna.

á morgun get ég svo sofið aðeins út. þarf ekki að mæta í neina tíma fyrir hádegi. svo er stefnan tekin á höfuðborgina eftir skóla annaðhvort með mömmu eða pabba. þarf að kaupa mér nýjan síma og ætla líka að kíkja á hana Þóru mína og sætu strákana í Húsó Wink

nenni ekki að blogga meir. ætla fá mér verkjatöflu og sofna svo fljótt.

Góða nótt allir Kissing

 

Viðbót!!  Er búin að fá 413 komment Grin  keep on going !  og Þóra er búin að kommenta 79 sinnum held ég :p


Vika eftir af skólanum

jæja þá. margt búið að gerast frá síðasta bloggi.

er samt svo utan við mig svo ég veit ekki hversu miklu ég kem frá mér í þessu bloggi.

er bara búin að vera í skólanum og svo á leiklistaræfingum á þriðjudaginn, miðvikudaginn og fimmtudaginn.

Miðvikudagurinn var nú bara rugl sko. var í skólanum til 20 min í 4, brunaði niður í Sementsverksmiðju til að sækja um styrk fyrir forvarnarhópinn. fór svo uppá vist og lærði og tók til, fór á leiklistaræfingu kl 6 til rúmlega 8. fór þá beint á línudansæfingu til 10! mæli ekki með að gera svona mikið á einum degi.

svo í dag voru dans og söngprufur fyrir söngleikinn og mér gekk bara svona lala. hann sagði reyndar að ég væri með geðveikt flotta rödd en ætti að syngja meira með líkamanum Whistling  svo sótti mamma mig og við brunuðum í bæinn. hitti Þóru mína smá stund, það var auðvitað gaman eins og alltaf Smile  þessi ljóshærði með toppinn uppí loft var nú ansi sætur Wink hehe

fórum svo á subway og svo á skagann. rúntuðum slatta, skoðuðum jólaljós og svona skemmtilegt. var svo bara að koma uppá vist og veit bara eeeeekkert hvað ég á að gera núna Errm

 


45 tímar eftir

vááá hvað ég verð ánægð þegar þessi blessaði skóli verður búinn! er komin með nett mikið ógeð af skóla!! sem betur fer er bara hálfur mánuður eftir eða 45 kennslustundir :p

 

annars er ég bara komin heim í sveitina, ég og mútta erum að fara byrja á jólakökunum í dag og er stefnan tekin á rúsínukökur og vanilluhringi :p mmmm. svo eitthvað meira næstu helgi og svona.

í gær fór ég í 80 ára afmæli hjá Þórði frænda mínum, hann er krútt. eins og vanalega borðaði ég á mig gat! ég komst líka að því að ég á frænda sem heitir Játmundur :O og er kallaður Játi! hvað er málið með þetta nafn? hef aaaaldrei heyrt það áður.

ég komst líka að því í gær. ohh svo margt sem ég komst að í gær :p hehe. að ég er með strák í dönsku sem heitir Kristján Huldar og ég var alltaf að leika við hann þegar ég bjó hliðiná harðar bakarí. ég var btw í afmæli hjá honum þegar ofnæmið mitt uppgötvaðist. gaman gaman.

svo komst ég að öðru :p  félagsfræðikennarinn minn er mamma konu sem kenndi einu sinni í heiðaskóla, og þessi kona er tengdadóttir vinafólks pabba!

jahá þannig var nú það :p

annars er ég nú ekki sátt með kommentafjöldan hérna! hmm

hei já svo á æfingu á miðvikudaginn fékk ég pakka :O frá kötu og ellu kennurum. þær gáfu mér armband því ég stóð mig svo vel í keppninni ;D   takk enn og aftur :*

langar að sofa lengur en get það bara ekki. ætlaði að láta mammz vekja mig kl 10 en ég er vöknuð rúmlega klukkutíma áður. hvörslags..

annars var ég að lesa eitt blogg áðan þar sem umfjöllunin var friends og nipplur á jennifer aniston. afhverju í ósköpunum nipplur? :p afhverju ekki bara þú veist eitthvað annað? bara geirvörtur eða eitthvað :p   pæling . . . .

ætla kúra mér smá áður en ég fer að baka


Gerið þetta :p

steltaði (stal) þessu af einni síðu, endilega gerið þetta :p

 

  1.  miðnafnið þitt:
  2. Aldur:
  3. Single or taken:
  4. Uppáhalds Bíómynd:
  5. Hvaða lag minnir þig á mig:
  6. Uppáhalds hljómsveit:
  7. Tattoo eða göt:
  8. Þekkjumst við persónulega:
  9. Hver er tilgangurinn með lífinu:
  10. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum:
  11. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli:
  12. Besta minningin þín um okkur:
  13. Myndir þú gefa mér nýra:
  14. Segðu einhvað skrítið um þig:
  15. Myndiru hugsa um mig ef ég væri veik:
  16. Getum við hist og bakað köku:
  17. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega:
  18. Finnst þér ég góð manneskja:
  19. Myndiru keyra með mig hringinn í kringum landið:
  20. Finnst þér ég aðlaðandi:
  21. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari:
  22. Í hverju sefuru:
  23. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla:
  24. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér:
  25. Ef ég ætti einn dag ólifað, hvað myndum við gera:
  26. Hvenær hittiru/sástu mig síðast:
  27. Hver er heitasti íþróttamaðurinn í dag:


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband