kann forsetinn á tölvu?

þegar háttvirtir menn eru farnir að kommenta er mál til komið að gera eitthvað í stöðunni!

 

það sem hefur gerst er margt og mikið.

komnir 5 mánuðir síðan ég byrjaði í bakaríinu

er búin að vera með Einari mínum í 3 mánuði :D

búin að skoða of mikið af bílum

skipulagði landsmót

fór á landsmót

vann mikið mikið

fór í 4 afmæli

búin að eignast nokkra peninga fyrir bílnum en bara spurning á hvernig bíl ég enda. sá einn geðveikan (pusjó) vinrauður og sætur en mamma var ekki nógu ánægð með hann svo hún verður þá bara að velja hann sjálf!!

ég fór líka á mjög svo ömurlegt ball uppá skaga, óli geir er ekki að meika það enda fór  hann í fangelsi um daginn :D hahahahaha.

 

þarf að fara koma mér á skagann að hitta alla!  fór samt uppá vist og hitti Gunnu Mæju mína og Sirrý og Huldu og Ingunni og einhverja :) mjög gaman :D

línudansinn er byrjaður aftur, er að gera mitt besta í að mæta en það gengur ponsu ílla þar sem ég er orðin mjöööööööööög þreytt klukkan 8 á kvöldin!

 

er ekki að nenna meiru! var að koma úr vinnunni og ætla að koma mér í rúmið að lúlla.

 

allir að kommenta! :D 


annars stigs bruni, busaball og kærastadót

ja hérna hér. er ég að standa mig í blogginu? nei!

en ég skal reyna að bæta úr því núna þar sem tölvan hans Einars er komin úr viðgerð :D

það sem á daga mína hefur drifið síðustu vikur er margt og mikið. ég er hætt að leygja þar sem ég var aldrei þar heldur bara dótið mitt. er búin að vera hjá einari næstum alla dagana sem við erum búin að vera saman svo hann vildi að ég segði upp leigunni og kæmi alfarið til hans og ég gerði það :) erum ennþá að koma okkur fyrir því hann var að fá nýtt og stærra herbergi og það er búið að taka okkur hálfan mánuð að setja upp tvö ljós :p letiblóð eða já? við höfum reyndar mjög góða afsökun: vinnutíminn okkar er þannig að við vökum og vinnum á nóttinni/morgnanna og sofum því á daginn og þá gefst ansi lítill tími fyrir eitthvað svona.

svo á fimmtudaginn tókst mér að brenna mig í vinnunni! ég var að þrífa bakaraofnana en brenndi mig samt ekki á hitanum heldur á efninu sem ég var með. baneitraður andskoti! er ekki sátt. var send uppá spítala að láta skola þetta og búa um sárin sem voru á báðum handleggjum og alveg frá úlnlið og upp að olnboga! þetta var ekkert smá! en núna er þetta allt á réttri leið :)

fór svo í smáralind á fimmtudaginn með einari og ég keypti tvo boli og eitthvað body spray með rosalega góðri jarðaberja lykt :p elska það! svo fórum við á þarna Born myndina og það var nú bara mesta furða hvað mér fannst hún góð, Einar þurfti bókstaflega að draga mig inn en svo var hún bara mjög góð :)

á föstudagskvöldið fór ég á busaballið á skaganum. byrjaði á að fara á skagann að versla í matinn og kaupa mér buxur sem kostuðu 12 þúsund kall! halló sko. sókti svo erlu sætabrauð og dörrt dúllurass og við fórum heim og svo kom guðdís gellubaun ;D drukkum, borðuðum og spjölluðum og höfðum bara ótrúlega gaman. takk fyrir komuna ;* svo skutlaði mamma okkur á ballið og vá!     það var svooooooooooooooooooo gaman!

ekkert smá langt síðan ég skemmti mér svona vel! hitti líka fuuuuuuullt af fólki sem ég hef ekki hitt í allt sumar! það var yndislegt. ég og erla vorum þær einu sem héldum út allt ballið :D svo kom mamma að sækja mig og við fórum í skútuna og rúntuðum smá og fórum svo heim að sofa, var orðin frekar þreytt þar sem ég var búin að vaka í 24 klukkutíma takk fyrir!

vaknaði svo bara í gær og var eitthvað að dúlla mér þar til einar, biggi og sunna komu að sækja mig og við fórum á skagann og fórum svo hvalfjörðin og gerðum margt skemmtilegt þar :D rúntuðum aðeins og svo fór ég og einar bara heim að sofa. er eiginlega bara nývöknuð núna og er mikið að spá í að fara upp í bakarí og ræna mér einni köku :p er svo svöng í köku :p  

læt þetta duga í bili. verið nú dugleg að kommenta ;D 


Fyrir ykkur sem hafið ekkert að gera =)

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku saman?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


margt gerst síðan síðast

jebbs það hefur vægast sagt margt gerst síðan síðast. eða allavega eitthvað :p

það var hringt  í mig frá RKÍ um daginn og ég fengin í nefnd sem skipuleggur unglingalandsmót rauða krossins og er ég búin að fara á einn fund og líst bara mjög vel á þetta, hlakka mikið til :)

 svo náði ég mér í eitt kærasta dót :p og hef verið heima hjá honum 24/7 síðan :p 

 og svo gerðist eitthvað fullt meir sem ég man ekki og nenni ekki að skrifa um :p svo ég segi þetta bara gott í bili :p


bloggsmogg

jæja smá blogg svo vælið í Erlu stoppi :p hehe

nenni bara ómögulega að fara í tölvu eftir vinnu því þá þarf ég að fara á bókasafnið og eitthvað en allavega, hér kemur smá færsla:

 

undanfarið hef ég ekki afrekað neitt nema sofa og vinna og brenna! jebb ég brann um daginn, ætlaði að verða svaka sæt og brún en neinei Gubban brann! en halló :p

ERLA!!! hættu að trufla mig með þessum smsum svo ég geti bloggað fyrir þig ;) hahahaha

en já allavega.

mér er byrjað að líka betur við vinnuna mína. er byrjuð að fá að gera meira. fékk meira að segja að gera hvítlauksbrauð um daginn! ohh það varð gasalega lekkert :p dagurinn í dag var samt ekki góður. klúðraði of mörgu og fann ekki neitt :p ahemm. en svona gengur þetta stundum.

ég er búin að plana verslunarmannahelgina mína. hún verður dásamleg. ætla að eyða henni með frábærri manneskju og vonandi á yndislegum stað ( nei einstaklingurinn er ekki karlkyns!)

en allavega

veit varla hvað ég á að skrifa meira. er að spá í að fara á heimasíðu rúnt og svona. eyða þessum 52 min sem ég á eftir í eitthvað gagnlegt.

langar á Ljótu hálfvitana í kvöld en nenni varla að keyra uppá skaga. svo spila þeir kannski bara eitt lag og þá er ég búin að sóa þvílíkum tíma í keyrslu og eitthvað og gæti hafa eytt honum í svefn og mér veitir sko ekkert af honum!

er að spá í að panta mér pizzu í kvöldmatinn og hafa það kósý . . einhver game fyrir utan Erlu? hún er alltaf að biðja mig um að koma kúra, þoli það ekki :p hahahahahahahahahahahaha

síjú!


jæja jæja

smá færsla á kantinum ;D

síðustu dagar hafa verið skrautlegir, mikil þreyta og pirringur en það eru bara tveir mánuðir eftir og þá hef ég sýnt kallinum að stelpur geta þetta alveg! :D can't wait!

annars er ég farin að halda að enginn sakni mín! hef fengið fá sms og bara ein beðið um hitting og það var hún elskulega Dagbjört mín! ;*  svo kommenta líka ógó mógó fáir (vá gelgjulegt)

en allavega....

er búin að fá dreyfbýlisstyrkinn og útborgað svo ég á mange penge og er að reyna að fá mömmslu til að koma í bæinn og eyða þeim með mér, langar líka geðveikt aftur í Laugar Spa! ég ætla amk einu sinni í sumar :p

svo verð ég meiri ljóska í næstu viku :D hlakka til að sjá útkomuna.

nenni ekki að blogga meira. á bara 18 min eftir af tímanum og ætla að nota hann í eitthvað gagnlegt!


Þrælavinnu líkast!

heil og sæl öll sömul! ákvað að henda inn smá færslu í tilefni þess að ég er komin í langþrátt (eitthvað er nú bogið við þetta) helgarfrí! :D er byrjuð að vinna í Mosfellsbakaríi og það er killer! vakna kl 04:00 og vinn framm yfir hádegi og oft mikið lengur! eins og fyrsta daginn, þá var ég til hálf 4!! semsagt í 11 og hálfan tíma, ég hélt ég dræpist! svo er ég heldur ekkert með góð laun því ég er bara nemi :(

svo líf mitt einkennist af mikilli vinnu og svefni og engu öðru! líf mitt er bókstaflega svona:

vakna 04:00

kaffipása 09:00-09:15 ca

svefn frá ca 15:00-18:30

matur 19:00

svefn 20:00-04:00

ég hlít að grennast eins og eldur um sinu í þessari vinnu! labba alltaf í vinnuna og borða ekkert óholt! :D 

starfsfólkið þarna er samt allt æðislegt! einn tjahh strákur og ekki strákur af skaganum og líka grundarfirði svo við könnumst við hvort annað og svo er þetta bara svo heimilislegt allt saman :)

vá ég verð að fara tala um eitthvað annað en vinnuna! :p

ég er búin að fá útúr öllu nema félagsfræði í skólanum og því náði ég öllu :D ekkert smá glöð þar sem ég var ansi hrædd um að falla í stærðfræði! úffi púff :p held ég sé á ansi gráu svæði með félagsfræðina en það kemur bara í ljós!

sit annars bara hérna inni á Netkaffi í mosó, rosa næs.

spurning hvað á að gera um helgina? er nú í bænum svo ég gæti bara kíkt á djammið ;D hahaha já eða ekki :p haha.

held ég fari að slíta þessu og koma mér heim að sofa! og borða! jii hvað ég varð allt í einu svöng :p

ykkur er alveg óhætt að slá á þráðinn til mín, þótt ég sé flutt af skaganum/sveitinni, þá er ég ekki flutt til hvergilands :)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband